Aldur: 14 / 15 ára

Tímalengd: 23 dagar

Lýsing: Unglingabúðir eru sumarbúðir með svipuðu sniði og fyrir 11 ára, nema að unglingarnir eru með í ráðum um stjórn búðanna og leikina sem farið er í. Í unglingabúðum er fyrirfram ákveðið þema til að auka skilning unglinganna á þeim málefnum sem eru efst á baugi í heiminum í dag. Í unglingabúðum er farið í leiki sem reyna á samskiptahæfileika þeirra og sjálfstæða hugsun. Í unglingabúðum er mikið um hlutverka- og hermileiki, þar sem líkt er eftir þjóðfélagi eða aðstæðum sem geta skapast, svo sem fötlun, ríkidæmi gegn fátækt eða stríði og friði. Unglingarnir fá að reyna hvernig það er að lenda í slíkum aðstæðum. Mikil áhersla er lögð á umræður eftir slíka leiki til að unglingarnir geti sjálfir rætt þær aðstæður sem þau upplifðu og sagt sína skoðun á því sem gerðist í þjóðfélaginu sem þau bjuggu sér til.

Kostnaður: Fargjald unglings, ¼ fargjalds fararstjóra, gjald til CISV og kostnaður við undirbúning


Hafa samband Programs Sumarb��ir 2021 S � F �